Jæja þetta er að verða hin myndarlegasta síða og virðist verða
vinsælli með hverri mínútuni sem líður, enda á ferð heimsfrægir
skemmtikraftar Eins og til dæmis Einar Sigmundur.
Já nú hefur hvorki heyrst í Köllu né Óskari en innherja
upplýsingar frá heimili hans segir að þetta sé bara orðið spurning
um hvenær en ekki hvort hann kíkji við, Í Karlottu hefur aftur á
móti ekki náðst í og er það miður.
Nú þegar er kominn fjöldin allur af skemmtiatriðum til að stytta
okkur stundirnar og ber þar hæst að Guðmundur ætlar þrátt fyrir
aðvaranir frá fleirum en einum að tefla á tvær hættur og gera
sósuna á grillinu, hafa ber í huga að óþjálfuðum mönnum er bent á
að vera helst ekki að því og er víst gífurlega mikilvægt að vera
bæði berhentur og fættur við verknaðinn, hef ekki kynnt mér þetta
mál frekar, En Guðmundur getur eflaust sagt okkur frá væntingum
sínum til verksins.
Nú Einar Sigmundur ætlar eftir að gengið hafi verið þungt á
eftir honum að spila 3 lög og vera eingöngu á brókini, væntanlega
tilhlökkunar efni hjá flestum stúlknana.
Nú Þær frænkur Eva og Alma ýr verða með um klukkustundarlanga
sýningu á gömludönsunum og ef tími leyfir þá jafnvel taka þær
chachacha, en það verður að ráðast.
Karlotta flytur ávarp um hvert og eitt okkar, að sjálfsögðu á
brókini.
Óskar hefur hugsað sér að styra bæðigrettu keppni og
fjöldasöng.
Sjálfur ætla ég að fara með skagfirskar vísur og lesa einn kafla
upp úr Hávamáli og býð einnig upp á brenni ef vel liggur á mér, sem
er alls ekki víst að verði.
Nú alma dögg ætlaði að vera með súludans en fannst það alls ekki
við hæfi þanig hún verður með um 15 mínútna sýningu á magadansi og
ætlar einnig að syngja argentínska þjóðsöngva
fleiri hafa ekki boðið sig fram til að skemmta en ég er næsta
viss að Nanna steina lumi á nokrum góðum spilagöldrum sem allir
yrðu glaðir að sjá.
Takk í bili
Gæi
p.s. ég fyrirgef þér heimskuna og allt hitt í þetta skipti
Nanna, en fólk verður nú að fara að nota heilann sko, Æn er að
sjálfsögðu Sósi.
sumsé einar sigmundur