10 ár frá fermingu....
23.05.2008 23:24:59 / riben83

Myndirnar frá stöðum Illuga komnar í Myndaalbúm

Loksins eru myndirnar komnar krakkar mínir...

MBK Óskar


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 21:02:23 / riben83

næst á dagskrá... sjó sjó;)

jæja þá eru bara tvær vikur í sjómannahelgina... og Eva vill fá ykkur strákana til að spila hjá sér á föstudagskvöldinu!!

hvernig leggst það í ykkur kallar??
endilega látið hana vita ef þið eruð til í það:)

svo er spurning hverjir ættla að gleðja Raufsarana með komu sinni þessa helgi???

P.S. setja nú inn myndir hérna þið sem tókuð eikkað í hittingnum!!

» 9 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 22:09:20 / riben83

KOMINN TÍMI Á ÞETTA

Þar sem ég brást öllum fyrir um ári hafði ég ekki samvisku í annað en að reyna að bæta ykkur það upp og er búinn að redda bústað núna um helgina á illugastöðum.

Nú þurfum við bara að fara að koma okkur í gírinn og negla þetta dæmi.

komast ekki örugglega allir?

» 19 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 22:02:48 / riben83

GAS GAS GAS GAS GAS!!!!!

sáuði ekki lögguna sem labbaði um og öskraði þetta í sífellu í kastljósinu?

mæli eindregið með að þau sem gerðu það ekki, t.d. alma ýr kíkji á þetta, alveg hreint sprenghlægilegt.

En það virðast flestir taka þokkalega í næstu helgina og þá er spurning um stað, Einar s stakk upp á nálægt Akureyri og get ég ekki verið ósáttur við þá tillögu.
En þar sem ég er eilítið hlutdrægur þá verðiði að segja hvað ykkur finnst, en þó verð ég að benda á þá einföldu staðreynd að akureyri er náttúrulega miðsvæðis þar sem við erum nokkuð dreifð um landið.

En segiði hvað ykkur finnst sem allra fyrst svo hægt sá að fara í að redda bústað sem allra fyrst því fyrirvarinn er stuttur og þetta er mikil ferðahelgi þannig bústaðir kannski liggja ekki á lausu mjög lengi.

svo vill ég benda ykkur sem ekki vissu það að ég er byrjaður með webcam show á msn og geng undir nafninu Webcamprinsinn og er með alls kyns stöff í gangi, búninga,dildó, grænmeti, og fyrir aðeins aukagreiðslu þá get ég farið út í dýra já eða dverga kynlíf.

Webcamprinsinn.

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 11:05:40 / riben83

JÆJA

Hvað segiði þá krakkarnir mínir? 

er virkilega ekkert að frétta síðan Einar S skrifaði fyrstu færslu ársins fyrir einhverjum mánuðum?

ég var að láta mér detta í hug að athuga hvernig helgin 1 - 4 maí leggst í ykkur, verðum við ekki bara að kýla á þetta þá? Væri mjög sniðugt þar sem 1 maí kemur upp á fimmtudegi og er frídagur og væri tilvalinn dagur í keyrslu eða undirbúning 8)

komið með álit

» 9 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 21:32:53 / riben83

Fyrsta færsla ársinns.

 

Já ekki leiðinlegt að eiga fyrsta blogg ársinns á þessari síðu.

Ég hef verið að velta fyrir mér hvort allur áhugi sé úti með þetta

hittings dæmi. Persónulega vil ég skella saman teiti bara strax.

Annars var þetta nú bara til þess að eiga fyrsta bloggið.

Kv. Einar 


» 20 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 01:53:25 / riben83

Gleðileg jól öllsömul!!!

vildi bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýu ári yndin mín..

þakka allt gamallt og gott og vona þið hafið það sem allra best!!

hittumst svo eiturhress á nýu ári:)

glimmrandi jólakveðjur.... Alma ýr

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 12:56:04 / riben83

HVAÐ ER AÐ FRÉTTA ?????

Sæl nú, það er akkúratekkert að gerast á þessari síðu... samt eru 28 heimsóknir komnar í dag og klukkan bara 13:00 Hvernig stendur á þessu helvíti???

Ég er búin að taka ákvörðun um að halda uppá 25 ára afmælið mitt 30 desember á Þórshöfn citty öllum árgang 1983 og 1982 auk allra annara sem heimsækja þessa síðu og telja sig þekkja mig er boðið að mæta. Fyrir þá sem eru á Raufarhöfn á þessum degi þá er þetta SKILDUMÆTING ;)

SPURNIG DAGSINS: Hvaða ár gerðist þetta og hvert var tilefnið??????????????????

Garðar Þorgmar mætti galvaskur uppá svið og las minni stelpna í bláu jakkafötunum ?

Elva Björk kinnti alla viðburði hátíðarinnar í þjóðbúnig?????

Ari Freyr stjórnaði með miklum krafti spurningakepni foreldra?????

 

Ef þið eruð að velta fyrir ykkur hvernig ég man þessi ósköp þá fékk ég lánað vidiospóur frá skólagöngu okkar í september síðastliðnum, því þá átti að vera hittingur sem var ekki eins og flestir muna ;) en ef einhverjir fleiri vilja sjá þá verður að fara negla niður dagsetningu.......:^):^):^):^) því ég ligg á þessu eins og ormur á gulli þangað til :klikk:

Kveðja Nanna  


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 21:01:48 / riben83

Sæææll.. eru lægðir yfir landinu eða ?

Góða kvöldið þið þarna nær og fjær.

Þar sem ekkert virðist ætla að verða úr þessu fyrir blessuð jólin datt mér í hug að skella inn

annari hugmynd. U.þ.b 7 mánuðir eru í sjómannahelgina og var ég að spá hvort það væri

ekki bara tilvalin helgi í þennann hitting. Fæstum þykir gaman að ferðast yfir veturinn og vonandi

enginn búinn að plana svona langt fram í tímann. Það yrði afskaplega gaman ef við gætum öll

tekið þessa helgi frá og haldið þetta bara á Raufarhöfn og haft nægan tíma til að skipuleggja

teitið. Sjóararnir verða í landi þessa helgi svo ekkert ætti að vera til fyrirstöðu nema einhver sé

búinn að plana svona langt fram í tímann.

 

Hvað segiði um þetta ?

 

Ekki bara lesa, kommenta líka ;)

 

Einar S. 


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 19:37:12 / riben83

Einn, tveir og...

Jæja, nú ætla ég að leggja nokkur orð í belg. Leyfið þeim að gerjast aðeins og bakiði svo eitthvað úr þeim.

 

Mér sýnist á öllu að þetta bústaðadæmi sé dautt mál. Leiðrétti mig einhver fari ég með rangt mál.

 

Þannig að...

Það er morgunljóst að það verður aldrei hægt að hafa einhverja samkundu þar sem allir geta komið. Því legg ég til að ef áhugi á einhvers konar endurfundum eða hvaðeina er fyrir hendi, þá verði þessi síða einfaldlega notuð til þess að tilkynna hvers konar partýáform sem fólk hefur þá og þegar, s.s. partý heima hjá einhverjum, hittingur á einhverjum bar, í einhverjum bæ o.s.frv.

 

Það er þó allavega eitthvað.

Tillaga hefur verið lögð á borð.

 

Og að þeim orðum sögðum drekk ég mitt öl og legg svo líklega leið mína í miðjan bæinn seinna í kvöld.

Kósí kveðjur,

Ingus.

 

p.s. til hamingju með fyrstu færsluna þína á þessari síðu.

Já.. takk.


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 17:41:16 / riben83

gæi hérna megin

jæja

ég er kominn með netið

lokins

fer sennileg ekki á sjó fyrir þessa helgi, hvað segiði um að slá þessu upp í leysi og halda þetta bara m helgina?

ha?

 

og Valves? what the fuck?

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 14:21:31 / riben83

FUNDUR Í KVÖLD KL 22

allir sem vetlingi geta valdið að mæta á msn fund í kvöld kl 22 8|8|

» 21 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 10:28:43 / riben83

Allsherjarnefnd, nefndanefnd, hefnd, hjálparhend.

Jæja Nefndin er sjálfskipuð, ég er forsetinn og nefndina skipa eftirfarandi :

Einar S (Forsetinn Sjálfur)

Alma Ýr (Formaður)

Inga Dagný (Ræðumaður nr.1)

Nanna (Ræðumaður nr.2)

Gæi (Glæpamaður) sem er auðvitað nauðsynlegt.

 

Já gott fólk Þá er að ákveða fundartíma.

 

Smá breyting : Við komumst að samkomulagi um stað og stund og erum við að spá í Veiðihúsinu

heima hjá Nönnu (Höfða) helgina 14 - 16 Sept. Það yrði mjög hentugt og skemmtilegt fyrir okkur

eru allskyns hugmyndir komnar. T.d að fara í skólann og skoða einhver vídjó og þess háttar.

Áður en þetta er endanlega staðfest viljum við fá svör frá ykkur sem búa sem lengst frá, athuga

hvort þetta sé nokkuð mjög óhentugt.

Svör óskast sem allra fyrst.

Kv. Nefndin.

 

Smá viðbót.

 

Já styð þessa hugmynd Gumma!

Fullgróft kannski að hafa dagskrá þar sem við vitum flest að meirihlutinn myndi ekki nenna

neinu svoleiðis rugli.

 

En smá hugmyndir um þetta :

 

Kíkja í skólann og skoða video (þyrfti væntanlega að hafa samband þangað með fyrirvara)

Versla á grillið í leiðinni.

Svo er náttúrulega möst að fá einhvern til að taka mynd af okkur öllum saman, svona

bekkjarmynd.

Hafa þetta bara nokkuð frjálst svo, ákveða eitthvað bara öll saman hvað væri hægt að gera

á staðnum.

 

Svo er það tíminn mér persónulega er sama um tímann en væri ekki magnað ef flestir yrðu

mættir föstudaginn 14. sept. í kring um 18:00. - 20:00 það tekur náttúrulega langan tíma

að keyra fyrir þau sem eru á suðurlandinu þannig að þetta þýðir frí í vinnu og þess háttar.

 

Svo væri með eindæmu magnað ef hægt væri að plögga stemmningu á barnum á

laugardagskvöldinu og ég, Óskar og Gummi gætum jafnvel tekið að okkur að halda uppi

stemmningu með spileríi. En þetta er náttúrulega bara hugmynd eins og annað.

 

Hvað segiði um þetta ? koma með skoðannir og fleiri hugmyndir.

 

Fyrir hönd nefndarinnar

Einar S. :P 


» 36 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 20:06:42 / riben83

jæja sko.... eftir hverju er verið að bíða??

Hvernig hljómar helgin 16-18 sept. fyrir ykkur krúttukögglana???

fyrsta skref er allavega að festa dagsettningu annað kemur á eftir því!!

og nú verða allir að koma með svar.....


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 16:17:15 / riben83

Daginn daginn !

 

 

Jæja það hefur lítið gerst í þessum málum hvað varðar þennan hitting.

Flestir hafa verið mikið uppteknir og verða það út þetta sumar.

Inga Dagný er í Svíþjóð, Nanna og Karlotta eru með familíu og Alma Dögg virðist vera mikið

upptekin í sumar. Gæi og Óskar eru náttúrulega bundnir sjónum og

er þetta hálfpartinn í óvissu hjá þeim líka. Persónulega skiptir það mig engu máli hvenær þetta

verður og Alma Ýr hefur sagt það líka. Ég veit ekki hvernig er með Gumma, en hann er líka með

familíu, en virðist geta hagrætt sínum tíma með fyrirvara. Er ekki kominn tími á það að skoða

dagatalið vel og gefa upp þann tíma sem hentar hverjum og einum best svo hægt sé að ákveða

góða dagsetningu í þetta ?

Ég er til í hvaða helgi sem er !

 

 

Kv. Einar Sigmundur.:haha:


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill